"Vertu Úlfur – Titillag" lyrics

"Vertu Úlfur – Titillag"

Ég berst einn í þessu stríði
Það breytir ekkert því að sól vermir heiði
Og kirkjubjöllur hringja á sunnudegi
Og fá mig til að stoppa
Eitt augnablik í friði

Vökvaðu mig
Mig þyrstir í tærleikann
Að ég fái að líða í mjúkum straumi
Eins og pilsfaldur í sumargolu

Ég vil vakna þakinn dögg
Sem hleypir sólargulli í stein
Sem situr þungur í maga mér sem fastast
Ljósið fær hann til að kristallast
Og endurspeglar hlýju um mig allan
Inn í fingurgóma
Þér vil ég þjóna

En kötturinn vill inn
Og klórar í gluggakarma
Og karmað vinnur alltaf allt og alla

Af hverju býr hjartað ekki í höfuðkúpu
Og heilinn hvílist við sefandi lungu?
Þá myndi rigna yfir heilann ástarhjúpur
Og kæla þetta sviðna hugarangur
Ég vil að þú vitir
Að hefði ég haft vitið
Hefði ég dansað við þig bara

Ég hringsólast í töfrum og skuggasælu
Þar til ég veltist um í tjöru
Og hvítum fjöðrum
Og mér heyrist eitthvert greyið vera að öskra
En öskrin hljóma ó svo kunnuglega
Vatnið sýnir spegilmynd mína
Og andlit mitt það virðist vera að rifna

Og kötturinn vill inn
Og klórar í gluggakarma
Og karmað vinnur alltaf allt og alla

Af hverju býr hjartað ekki í höfuðkúpu
Og heilinn hvílist við sefandi lungu?
Þá myndi rigna yfir heilann ástarhjúpur
Og kæla þetta sviðna hugarangur
Ég vil að þú vitir
Að hefði ég haft vitið
Hefði ég dansað við þig bara


You May Also Like
Björk - "Possibly Maybe" Your flirts, it finds me out Teases the crack in me Smittens me with hope Possibly maybe Possibly maybe Possibly maybe As much as I definitely enjoy solitude I wouldn't mind perhaps Spending little...
Bat For Lashes - "I'm On Fire" Hey, little boy, is your mama home? Did she go and leave you all alone? Oh, got a bad desire Oh-oh-oh, I'm on fire Tell me now, baby, is she good to you? Does she do to you the things that I do? Oh,...
Agnes Obel - "The Curse" And the people went into their hide, they oh From the start they didn't know exactly why, why Winter came and made it so all look alike, look alike Underneath the grass would grow, aiming at the sky...
Ane Brun - "True Colors" You with the sad eyes Don't be discouraged Oh I realize It's hard to take courage In a world full of people You can lose sight of it all And the darkness inside you Can make you feel so small But I...
Lisa Hannigan - "Fall" Hide your horses, hold your tongue Hang the rich and spare the young Who drain the spirits from the jars Hop the fences, steal the cars Run on fumes and from the north And burn for us right through...