"Lifandi Vatnið" lyrics
"Lifandi Vatnið"
Við brekkurætur litla lindin leitar upp að fylla kerið
Á sér jöfnum hita heldur hennar mildi þessu veldur
Dúðuð er í dýjamosa
Deigan, mjúkan, ferskan, grænan einangruð frá illum mætti
Eitri, græðgi og sóðahætti
Ein og bláeygð fjalladís í hörkugaddi ekki frýs
Ljómar vatnið líknarandi lifandi er brunnur þessi
Þegar einhvern þorstinn plagar þegar strembnir gerast dagar þar er svölun alltaf vís

Writer(s): Gudmundur Kristinn Jonsson, Asgeir Trausti Einarsson, Einar Georg Einarsson
- AZLyrics
- A
- Asgeir Lyrics