"Til Valhallar" lyrics
"Til Valhallar"
[Óðinn:]
Heyri ég Heimdall
Í horn blása
Gyllt gjallarhorn
Gestum fagnar
Regnboginn skelfur
Skrefhörðum mönnum
Bifrastar brú
Brakar undir
[Heimdallur:]
Sem vörður Valhallar
Ég vara yður:
Fylkjast hingað
Fræknar hetjur
Bjóðið bekki
Og borð hlaðið!
Öl berið inn
Óðinn fær gesti
[Óðinn:]
Framtíð þjóðar
Fæddist með yður
Sem fórnuðu lífi
En lifið þó
Í eilífum sóma
Afburðarmanna
Velkomnir, vinir...
Valhallar til!
- AZLyrics
- S
- Solstafir Lyrics
EP: "Til Valhallar" (1996)